Kaldalón hf.: Sala á fasteignaverkefni
Kaldalón hf. Sala á fasteignaverkefni í Hnoðraholti í Garðabæ
Þróunarfélagið Hnoðraholt ehf., dótturfélag Kaldalóns hf., hefur undirritað kaupsamning við Reir Verk ehf. um sölu á uppbyggingaverkefni félagsins í landi Smárahvamms (Hnoðraholti) í Garðabæ þar sem skipulagstillaga gerir ráð fyrir byggingu allt að 200 íbúða.
Kaupsamningurinn er gerður með ýmsum fyrirvörum, svo sem endanlegu samþykki stjórna samningsaðila og stjórnar Kaldalóns hf. Einnig eru fyrirvarar um samþykki fjármögnunaraðila.
Salan tekur til þess hluta verkefnisins sem ætlaður er fyrir íbúðarhúsnæði. Þar fyrir utan heldur Kaldalón áfram á þeim hluta verkefnisins sem ætlaður er fyrir atvinnuhúsnæði, en þau verðmæti hafa óveruleg áhrif.
Uppgjör í samræmi við kaupsamninginn mun að mati stjórnenda Kaldalóns hf. leiða til þess að verðmæti eignarhluta Kaldalóns hf. í Þróunarfélagi Hnoðraholts hf. verði í samræmi við mat í uppgjöri félagsins þann 30.6.2020. Eignarhlutur Kaldalóns í Þróunarfélaginu Hnoðraholti var þá metinn á 1.315 milljónir króna. Áhrif sölunnar á rekstur Kaldalóns eru að fjárbinding og skuldir félagsins minnka umtalsvert, en salan hefur óveruleg áhrif á sjóðstreymi.
Eftir viðskiptin er Kaldalón með framkvæmdir í undirbúningi á um 700 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Þór Þorvaldsson framkvæmdastjóri Kaldalóns í síma 899-9705
Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!
You May Also Be Interested In
- Orum Therapeutics Announces U.S. FDA Clearance of an IND Application for ORM-1153, a Novel CD123-GSPT1 Degrader-Antibody Conjugate
- Alibaba Group Announced Proposed Placing of New Shares in Hong Kong
- XRP Price Prediction Turns Explosive at $1.48 While Pepeto Wallets Rush the Presale Before Listing
Create E-mail Alert Related Categories
Globe Newswire, Press ReleasesRelated Entities
EIM GroupSign up for StreetInsider Free!
Receive full access to all new and archived articles, unlimited portfolio tracking, e-mail alerts, custom newswires and RSS feeds - and more!



Tweet
Share