Hagar hf.: Útboð á víxlum 20. maí 2025
Hagar hf. efna til útboðs á víxlum þriðjudaginn 20. maí 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA251126.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/
Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 20. maí 2025. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 27. maí 2025.
Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522-4000, [email protected]
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., [email protected]
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., [email protected]
Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!
You May Also Be Interested In
- Creatd Announces Approval of Premium Tender Offer for Vocal, Inc. Regulation Crowdfunding Shares
- New York Life and Boys & Girls Clubs Announce $75,000 Donation Through Strikeout Series Partnership
- Leading Independent Proxy Advisory Firm ISS Recommends Empery Digital Stockholders Vote on ATG Capital's GOLD Proxy Card
Create E-mail Alert Related Categories
Globe Newswire, Press ReleasesRelated Entities
EIM GroupSign up for StreetInsider Free!
Receive full access to all new and archived articles, unlimited portfolio tracking, e-mail alerts, custom newswires and RSS feeds - and more!



Tweet
Share