Fljótsdalshérað fjárhagsáætlun 2019-2022

November 7, 2018 11:00 AM EST

Fjárhagsáætlun 2019 – 2022

Hjálögð tillaga fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2020-2022 lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs á fundi þann 7. nóvember 2018 og er byggð á grunni þess fjárhagsramma sem nefndum  sveitarfélagsins var ætlað að laga sig að í endanlegri áætlanagerð. 

Lykilmarkmið bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs undanfarin ár:

  • Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2019 er rekstarjöfnuður áranna 2017-2019 jákvæður um 619 millj. kr.  fyrir samstæðu  A- og B- hluta og 388 millj. kr í A hluta fyrir sama tímabil.
  • Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
  • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2019 verður framlegðarhlutfall A-hluta 13% og í samstæðu A og B hluta 18,7%.
  • Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
  • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2019 mun veltufé frá rekstri nema 687 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 532 millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 442 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 366 millj. kr.
  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2019 verður skuldaviðmið samstæðu A og B hluta skv. reglugerð 143% í árslok og er undir þeim viðmiðunum sem kröfur eru gerðar um skv. Sveitarstjórnarlögum.
    • Skuldahlutfall  A-hluta í árslok 2019 verður 117% og í  samstæðu fyrir A og B hluta nemur skuldahlutfallið um 172%. 
    • Árið 2022 er skuldahlutfall samstæðu A og B hluta áætlað að verði um 135%.   Skuldahlutfall A hluta er áætlað að verði 90%  í árslok 2022.
  •  Skuldahlutfall A hluta, sem er hinn eiginlegi sveitarsjóður, fór niður fyrir 150% á árinu 2016.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2019-2022

  • Rekstarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er jákvæð á árinu 2019 um 160 millj. kr.  Þar af er afkoma af rekstri A hluta jákvæð um 85 millj. kr.
     
  • Skatttekjur hækka um 194 millj. kr. á milli áranna 2018 og 2019 og nema 3.770 millj. kr. sem er 5,4% hækkun.
     
  • Útsvarstekjur nema 2.010 millj. kr. og hækka um 7,3% miðað við útkomuspá fyrir árið 2018.  
     
  • Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 412 millj. kr. sem er 11,5% hækkun frá 2018.
     
  • Framlög Jöfnunarsjóðs  nema 1.312 millj. kr. sem er 0,9% hækkun frá áætlaðri útkomu 2018.
     
  • Innri leiga á málaflokka í rammaáætlun hækkar almennt um 1,6% frá áætlun ársins 2018.
     
  • Í útkomuspá launa fyrir árið 2018 er áætluð niðurstaða um 2.345 millj. kr. en verða um 2.531 millj. kr. á árinu 2019 sem gerir um 7,9% hækkun á milli ára.  Stöðugildi eru áætluð um 279 samanborið við 277 árið 2018.
     
  • Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 553 millj. kr. eða 13% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 874  millj. kr. eða 18,7%.

Fjármagnsliðir:
Í forsendum fjárhagsáætlunar er verðbólga áætluð 3,6% á árinu 2019.   Árið 2020 er gert ráð fyrir 3,3% verðbólgu og 2021 er miðað við 2,6% verðbólgu. Árið 2022 er gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu.  Greiddir vextir miðast við þá lánasamninga sem þegar hafa verið gerðir.  Ekki er gert ráð fyrir breytingum á gengi íslensku krónunnar á tímabilinu.

Önnur atriði sem einkenna áætlun 2019:
Ef farið er í gegnum frekari greiningu á þeirri áætlun sem hér er lögð fram eru nokkur almenn atriði sem vert er að geta:

  1. Fjárfestingar ársins 2019 í Eignasjóði eru áætlaðar 220 millj. kr.  Meðal stærri framkvæmda sem áform eru um að hefjist á árinu 2019 og næstu 2 árin á eftir eru viðbygging við Leikskólann Hádegishöfða og fimleikahús auk útikörfuboltavallar.  Er kostnaður þessara verkefna áætlaður um 572 millj. kr og ljúki að mestu á árinu 2021.   Á árinu 2018  var gengið frá samningi við Ríkið um menningarhús en þar er um að ræða  uppbyggingu á aðstöðu í Sláturhúsinu og Safnahúsinu en það verkefni er áætlað að kosti um 442 millj. kr. sem hefst á næsta ári og lýkur á árinu 2022.  Síðan eru nýframkvæmdir í gatnagerð einnig á forgangslista næstu ára og er áætlað að verja 166 millj. kr til þeirra verkefna á næstu 4 árum en á móti koma tekjur af gatnagerðargjöldum upp á um 65 millj. kr.   Hitaveita Egilsstaða og Fella gerir ráð fyrir að verja 209 millj. kr. í fjárfestinga á næsta ári sem er að stórum hluta 1. áfangi í heildarlausn á útrásum fráveitu.   Til félagslegra íbúða er áætlað að verja 15 millj. kr. í endurbyggingu eigna. 
  2. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er gert ráð fyrir 170 millj. kr. lántöku hjá A hluta vegna fjárfestinga á árinu 2019.  Þar af eru 100 millj. vegna fjármögnunar á hlutdeild sveitarfélagsinsi í hallrarekstri lífeyrissjóðsins Brúar.  Því er í raun 70 millj. kr. vegna fjárfestinga á árinu 2019.  HEF mun þurfa 100 millj. kr. lántöku til að mæta fjárfestingaþörf á árinu 2019.

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.

Attachment



Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!

You May Also Be Interested In





Related Categories

Press Releases

Related Entities

EIM Group