Bera hf.: Framboð til stjórnar
Aðalfundur Beru hf. verður haldinn miðvikudaginn 13. maí 2026, kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 8. maí 2026, kl. 16:00.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
- Andri Þór Guðmundsson
- Gerður Huld Arinbjarnardóttir
- Magnús Árnason
- Rannveig Eir Einarsdóttir
- Sigríður Elín Sigfúsdóttir
Er það mat stjórnar að framboðin séu gild, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga og samþykktir félagsins.
Samkvæmt gildandi samþykktum er stjórn félagsins skipuð fimm einstaklingum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar á heimasíðu félagsins: www.berahf.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Atkvæðagreiðsla á fundinum fer fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM veflausnina. Nánari leiðbeiningar um skráningu á fundinn, sem og þær tillögur sem koma til umræðu á fundinum, liggja fyrir á heimasíðu félagsins: www.berahf.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Innskráningarupplýsingar, þ.e. notandanafn og lykilorð, verða afhentar á fundarstað fyrir upphaf fundar. Eru hluthafar því hvattir til þess að mæta tímanlega á fundinn.
Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!
You May Also Be Interested In
- AAVantgarde Presents Encouraging Clinical Data from AAVB-081 and Preclinical Data Supporting AAVB-039 at EURetina 2026
- GROWNSY Kicks Off Prime Big Deal Days With One Idea: ONE DAY EARLIER. ONE DAY EASIER.
- Vaxcyte to Host Webcast and Conference Call to Present Topline Data from OPUS-1, the Pivotal Adult Phase 3 Trial of VAX-31, the Company’s 31-Valent Pneumococcal Conjugate Vaccine Candidate
Create E-mail Alert Related Categories
Globe Newswire, Press ReleasesSign up for StreetInsider Free!
Receive full access to all new and archived articles, unlimited portfolio tracking, e-mail alerts, custom newswires and RSS feeds - and more!



Tweet
Share