Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum

December 4, 2024 3:12 PM EST

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.120 m.kr.

Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 420 m.kr. í 3ja mánaða víxlinum á 9,59% vöxtum og 700 m.kr. í 6 mánaða víxlinum einnig á 9,59% vöxtum eða samtals 1.120 m.kr. Áður hafði félagið selt 500 m.kr. í víxlinum AL 25 0315. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 920 m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. desember 2024.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., í tölvupósti, [email protected]




Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!

You May Also Be Interested In





Related Categories

Globe Newswire, Press Releases